Vatnaskógsferð 2026
Vatnaskógsferðin er mikilvægur hluti af fermingarfræðslunni. Þar koma saman fermingarbörn úr sóknum í Vesturlandsprófastsdæmi til nokkurra daga dvalar, fræðslu, leikja, útivistar, helgihalds og samfélags.
Mikil ánægja hefur verið með Vatnaskógsferðina hjá fermingarbörnum liðinna ára og langflestum þeirra hefur fundist hún mjög skemmtileg.
Ferðin er ætluð fermingarbörnum, en einnig eru velkomin þau sem hafa ekki tekið endanlega ákvörðun um fermingu eða langar að taka þátt í ferðinni þó þau ætli sér ekki að fermast. Áherslan er fyrst og fremst á jákvæða upplifun, góðan félagsskap og þátttöku í sameiginlegri dagskrá.
Tími og brottför
Vatnaskógsferðin verður 23. ágúst–27. ágúst 2026.
Farið verður frá Ólafsvíkurkirkju kl. 15:00 og áætlað er að komið verði til baka kl. 16:00 á heimkomudegi.
Ferðin er 4 gistinætur.
Matur, ofnæmi og lyf
Maturinn í Vatnaskógi er bæði góður og ríkulega útilátinn. Hver dagur hefst á staðgóðum morgunverði og síðan er hádegismatur, kaffitími, kvöldmatur og kvöldhressing áður en farið er í háttinn.
Mikilvægt er að mæta alltaf í matsalinn á matmálstímum því þeir eru líka notaðir til þess að koma upplýsingum og skilaboðum til barnanna, auk þess sem þau börn sem þurfa stuðning starfsfólks við lyfjanotkun fá hann þar.
Ef um fæðuofnæmi eða fæðuóþol er að ræða er hægt að geta þess við skráningu í ferðina og það sama á við ef óskað er eftir aðstoð starfsfólks við að stýra lyfjanotkun.
Dagskrá
Á morgnana er sameiginleg stund með öllum hópnum og síðan fræðsla þar sem börnunum er skipt í minni hópa. Eftir hádegi er frjálsari tími með ýmsum dagskrárliðum eftir veðri, til dæmis íþróttum, útiveru og annarri afþreyingu.
Á kvöldin eru kvöldvökur og/eða helgihald. Gert er ráð fyrir messum eða helgistundum með ólíku sniði meðan á ferðinni stendur.
Þau börn sem koma í ferðina eiga að taka fullan þátt í allri dagskrá hennar, hvort sem þau ætla að fermast eða ekki.
Kostnaður
Kostnaðurinn við Vatnaskógsferðina er 32.000 kr. Greiðslufrestur vegna ferðarinnar er til 1. júlí, nema samið sé sérstaklega um annað.
Héraðssjóður Vesturlandsprófastsdæmis greiðir rútuferðina og styrkir þátttöku hvers barns, þannig að kostnaður foreldra verður töluvert lægri en hann annars væri. Innifalið í gjaldinu eru ferðir báðar leiðir, matur í Vatnaskógi og öll aðstaða á staðnum.
Ef fjárhagur stendur í vegi fyrir þátttöku er mikilvægt að hafa samband við sóknarprest. Þá verður leitað lausna, til dæmis með frekari stuðningi eða frestun á greiðslu.
Leyfi frá skóla
Foreldrar eða forráðamenn þurfa sjálfir að sækja um leyfi frá skóla vegna ferðarinnar.