Fermingar 2027
Vatnaskógur
Fermingarfræðsluferðalag í Vatnaskóg, 23. ágúst–27. ágúst.
Vinsamlegast hafið samband við sóknarprest ef upplýsingar um ofnæmi, lyf eða annað mikilvægt hafa breyst eftir skráningu.
Fermingarfræðslan og þátttaka
Fermingarfræðslan fer fram yfir veturinn, að jafnaði aðra hverja viku. Á námsárinu er miðað við sex fræðslutíma fyrir jól og sex eftir áramót, auk einnar lengri samveru með matarhléi. Dagskrársíðan heldur utan um dagsetningar og tíma fræðslunnar.
Auk kennslustunda er gert ráð fyrir að fermingarbörnin taki þátt í helgihaldi og öðru starfi kirkjunnar. Þau eiga að mæta í að minnsta kosti tíu guðsþjónustur yfir veturinn og taka þátt í verkefnum sem tengjast kirkjustarfinu.
Í nóvember taka fermingarbörnin einnig þátt í árlegri söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Þá ganga börn í hús og safna til stuðnings þróunarsamvinnu, meðal annars vatnsverkefnum í Afríku. Söfnunin er hluti af fermingarfræðslunni og hjálpar börnunum að kynnast hjálparstarfi kirkjunnar í verki.
Námsefni og Biblía
Allt námsefni fermingarfræðslunnar er birt í Fermingarkverinu. Börnin þurfa þó að mæta í alla tíma með Biblíu. Það auðveldar kennsluna að börnin noti sömu útgáfu, þannig að hægt sé að vísa öllum á sömu blaðsíður.
Biblían sem við notum í fermingarfræðslunni er Ný Biblía. Við bjóðum foreldrum að panta hana í gegnum kirkjurnar. Með því er tryggt að barnið fái sömu útgáfu og notuð er í kennslunni og við getum jafnframt boðið hana á hagstæðara verði en almennt fæst í verslunum.
Pöntun í gegnum kirkjurnar er valfrjáls. Ef barnið á þessa útgáfu þegar þarf ekki að kaupa nýja.
Verðið er 4.000 kr. Almennur pöntunarfrestur var 10. ágúst 2026. Greiðsla telst jafnframt pöntun.
Þau sem panta fá Biblíuna afhenta þegar lagt verður af stað í Vatnaskóg eða síðar eftir samkomulagi. Mælt er með því að hvert barn merki sína Biblíu.
Facebook-hópur fyrir tilkynningar og samskipti
Við notum lokaðan Facebook-hóp fyrir tilkynningar, áminningar og samskipti vegna fermingarfræðslunnar og Vatnaskógsferðarinnar. Þegar barn hefur verið skráð í fermingu eða Vatnaskógsferð geta foreldrar óskað eftir inngöngu í hópinn. Fermingarbörn og önnur skráð börn sem nota Facebook geta einnig óskað eftir inngöngu, ef foreldrar telja það viðeigandi. Aðeins þau sem tengjast skráðu barni eru samþykkt í hópinn.
Kostnaður og greiðslur
Vatnaskógsferðin kostar 32.000 kr. Gjalddagi er 1. júlí 2026.
Fermingar- og kyrtlagjald er 28.200 kr. Gjalddagi er 1. nóvember 2026.
Pöntun Biblíu í gegnum kirkjurnar okkar kostar 4.000 kr. Almennur pöntunarfrestur var 10. ágúst 2026. Greiðsla telst jafnframt pöntun.
Nánar um Biblíuna og pöntun á henni
Greiðsluupplýsingar
Allar greiðslur vegna Vatnaskógsferðar, fermingar- og kyrtlagjalds og kaupa á biblíum eru lagðar inn á reikning Sóknarsamlags Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalls.
Vinsamlegast hafið nafn barnsins sem skýringu greiðslu og sendið kvittun í tölvupósti á aegirorn@kirkjan.is.
Staða greiðslna og pantana
Stöðu greiðslna og pantana má sjá eftir innskráningu undir Greiðslur og pantanir á síðunni Fermingin mín. Nokkur töf getur orðið á því að greiðsla birtist. Foreldrar eru beðnir að fylgjast með stöðunni og hafa samband við sóknarprest ef þeir telja hana ekki rétta.
Um ferminguna og fermingarstarfið
Í fermingarfræðslunni fá börnin fræðslu um kristna trú, skírnina, bænina, kirkjuna og kristið líf. Ferming tengist skírninni sérstaklega: þau sem voru skírð sem börn fá tækifæri til að staðfesta þá trúarjáttingu sem foreldrar og guðforeldrar mæltu fyrir þeirra hönd við skírnina. Með því staðfesta þau að þau vilji tilheyra kirkju Krists og rækta trú sína. Markmið fermingarstarfsins er því bæði að styrkja fermingarbörnin í trúnni og að undirbúa þau fyrir að svara spurningu prestsins í fermingarathöfninni: „Vilt þú leitast við að hafa Jesú Krist að leiðtoga lífsins?“ Í athöfninni þiggja þau síðan fyrirbæn og blessun.
Fyrir nánari upplýsingar eða spurningar um fermingarstarfið í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli má hafa samband við sóknarprest: aegirorn@kirkjan.is