Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall

Hagnýtar upplýsingar fyrir Vatnaskógsferðina

Á þessari síðu eru hagnýtar upplýsingar fyrir þau sem eru skráð í Vatnaskógsferðina. Vatnaskógur er í Svínadal, norðan við Hvalfjörð, þar sem Skógarmenn KFUM reka sumarbúðir og fermingarbúðir. Mikilvægt er að kynna sér upplýsingarnar vel áður en lagt er af stað.

Brottför og heimkoma

Brottför er frá Ólafsvíkurkirkju 23. ágúst 2026 kl. 15:00.

Heimkoma er áætluð 27. ágúst 2026 kl. 16:00. Nákvæmari tími verður tilkynntur í Facebook-hópnum þegar lagt verður af stað heim.

Dagskrá

Á morgnana eru sameiginlegar stundir og fræðsla í hópum. Eftir hádegi er frjálsari tími með ýmsum dagskrártilboðum eftir veðri, til dæmis íþróttum, útiveru og annarri afþreyingu. Á kvöldin eru kvöldvökur og/eða helgihald.

Gert er ráð fyrir messum eða helgistundum með ólíku sniði meðan á ferðinni stendur.

Í einhverjum helgistundum getur verið boðið til altarisgöngu. Foreldrar eru hvattir til að ræða það við börnin sín. Ef foreldrar kjósa að barn gangi ekki til altaris er sjálfsagt að láta vita.

Hvað þarf að taka með?

  • Sæng eða svefnpoki
  • Lak
  • Snyrtidót
  • Föt til skiptanna
  • Hlý föt
  • Stuttbuxur
  • Stuttermabolir
  • Húfa og vettlingar
  • Úlpa
  • Regnföt
  • Stígvél
  • Strigaskór
  • Skór sem mega blotna
  • Innanhússíþróttaskór
  • Íþróttaföt
  • Sundföt
  • Að minnsta kosti tvö handklæði
  • Snyrtileg föt fyrir lokakvöld
  • Annað sem þarf til ferðalaga í íslensku veðri

Merkið allan búnað með nafni og símanúmeri. Hver ber ábyrgð á sínum farangri.

Ekki hafa með

  • Farsíma
  • Tölvur
  • Hátalara
  • Leikjatölvur eða önnur tæki sem trufla dagskrá
  • Orkudrykki
  • Nikótín eða önnur óleyfileg efni

Að fenginni reynslu valda farsímar of mikilli truflun í ferðinni og því eiga börnin ekki að hafa síma með sér. Ef nauðsyn krefur verður hægt að hafa samband við foreldra eða forráðamenn.

Vasapeningar og nesti

Hafa má með sér lítilsháttar sælgæti, snakk eða gos, en ekki orkudrykki. Börnin þurfa ekki að hafa peninga með sér í ferðina.

Lyf, ofnæmi og sérþarfir

Ef barn notar lyf er mikilvægt að láta vita í skráningarforminu eða hafa samband við sóknarprest áður en farið er. Best er að afhenda lyfin með skýrum leiðbeiningum við brottför eða við komu í Vatnaskóg. Lyfin eru þá geymd á öruggum stað og afhent á matmálstímum eftir því sem þarf.

Ef um fæðuofnæmi eða fæðuóþol er að ræða þarf að koma þeim upplýsingum á framfæri tímanlega svo hægt sé að miðla þeim til eldhússins.

Ef um alvarlegt ofnæmi er að ræða er gott að hafa einnig beint samband við sóknarprest.

Veikindi, óhöpp og forföll

Ef barn veikist í ferðinni verður haft samband við foreldra eða forráðamenn og metið í samráði við þau hvort barnið þurfi að vera sótt. Ef leita þarf læknis er sú þjónusta á Akranesi.

Ef barn forfallast þarf að tilkynna það sem fyrst.

Leyfi úr skóla

Foreldrar þurfa sjálfir að biðja um leyfi fyrir börnin sín í skólanum meðan ferðin stendur. Skólarnir hafa þó almennt verið upplýstir um ferðina og lagt blessun sína yfir þessi áform.

Reglur og sameiginleg ábyrgð

Ætlast er til að allir þátttakendur mæti með jákvæðu hugarfari, virði reglur og mörk og leggi sitt af mörkum til að allir fái notið dvalarinnar.

Ferðin er hópferð með sameiginlegri dagskrá. Gert er ráð fyrir að öll börn taki þátt í fræðslu, máltíðum, útivist, kvöldvökum og helgihaldi.

Alvarleg eða ítrekuð agabrot geta leitt til þess að foreldrar þurfi að sækja barn í ferðina. Hver einstaklingur ber ábyrgð á tjóni sem hann kann að valda.

Starfsfólk og öryggi

Prestar og starfsfólk Vatnaskógar koma að dagskrá, fræðslu, frítíma, gæslu og matseld. Fyllsta öryggis er gætt eins og kostur er. Börnin eru tryggð meðan á dvölinni stendur.

Óskilamunir

Ef eitthvað gleymist í Vatnaskógi er hægt að hafa samband við skrifstofu Vatnaskógar í síma 588-8899. Óskilamunir eru yfirleitt geymdir í um einn mánuð.

Tengiliðir

Forstöðumaður fermingarnámskeiðsins er Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. Hægt er að hafa samband við hann í síma 895-2243 eða með tölvupósti á srsgs@simnet.is ef óskað er eftir nánari upplýsingum um námskeiðið. Einnig má hafa samband við sóknarprest: aegirorn@kirkjan.is.